perlan-allt_i-steik-2012-is
/tapashusidveitingastadir_is
  • Finna veitingastað
  • Póstlisti



Þátttakendur á póstlista eiga möguleika á því að vinna gjafabréf á veitingastaði o.fl.

Nafn:
Netfang:
Kyn:
Security:


Skrá  
Uppskriftir - Kjúklingapasta
Kjúklingapasta

Matarskammtur 4-5
Tími 40 mínútur
Erfiðleikastig Miðlungs

HráefniKjúklingapasta

  • 5 dl soðnar pastaskrúfur.
  • 2 dl maís úr dós.
  • 1 grillaður kjúklingur.
  • 200 g léttsoðið spergilkál.
  • 1/2 saxaður blaðlaukur (hvíti hlutinn).
  • 1 dós kjúklingasúpa.
  • 1 msk. tómatkraftur (tomatpuree).
  • 1 pressaður hvítlauksgeiri.
  • 1 dl rjómi.
  • 150 g rifinn óðalsostur.
  • 4 msk. parmesan. 

Matreiðsla

  1. Smyrjið eldfast mót og setjið pastaskrúfurnar í mótið.
  2. Dreifið maísnum yfir, skerið kjúklingakjötið smátt og dreifið því yfir maísinn.
  3. Setjið spergilkálið ofan á og dreifið blaðlauknum yfir.
  4. Blandið saman súpunni, tómatkrafti, hvítlauk og rjóma og hellið yfir.
  5. Rífið ostinn, blandið parmesan saman við hann og stráið yfir réttinn.
  6. Bakið í 15-20 mínútur við 200 gráður.
  7. Berið fram með hvítlauksbrauði.


Til baka       Uppskriftir       Prenta  
Booking - Visit Visitors Guide 150 SOS banner umhyggja.is