|

Kæri viðtakandi
Nú gefum við þrjá vinninga :). Í fréttabréfinu er sagt frá frábæru þriggja rétta tilboði á Silfur, fréttum og fleiri góðum tilboðum á veitingastöðum, og heimsókn á Grillmarkaðinn.
Vinningshafar
Fyrsti vinningshafinn af þremur sem við drógum út af póstlista er Björn Sigurðsson, með netfangið bs234@simnet.is, sem hlýtur gjafabréf fyrir tvo á „Allt í steik“ í Perlunni. Vinningshafi númer tvö sem tilkynntur er á forsíðu vefjar fær gjafabréf á Tapas barinn sem dugar sem máltíð fyrir tvo ásamt vínglasi. Þriðji vinningshafinn sem er tilkynntur á Facebook-síðu okkar fær Einkaklúbbskort að gjöf, en sá ágæti klúbbur á 20 ára afmæli í vikunni.
Frábært tilboð á þriggja rétta máltíð
Veitingastaðurinn Silfur við Austurvöll býður upp á tilboð á þriggja rétta máltíð í janúar og febrúar. Fyrir aðeins kr. 3.900 færðu þriggja rétta máltíð að hætti hússins. Tilboðið gildir alla daga nema mánudaga og þriðjudaga, en þá er lokað. Til að eiga kost á þessu tilboði þarftu að kaupa það hér á Veitingastadir.is. Það er gráupplagt að nýta sér þetta tilboð hvort sem er fyrir vini, pör eða vinnustaðahópa sem vilja gera sér glaðan dag.
Heimsóknir og umfjallanir um staði
Á forsíðunni eru fréttir þar sem sagt er frá frábæru tilboði á Tapas Barnum á mánudögum og þriðjudögum, en einnig upplýsingar um „Allt í steik” í Perlunni. Auk þess er sagt frá góðu „2 fyrir 1“ tilboði á Sjávarkjallaranum fyrir Einkaklúbbskorthafa. Við segjum frá heimsóknum okkar á Grillmarkaðinn fyrr í vetur. Umsagnirnar eru efst í flokknum „umsagnir um veitingastaði“ neðst á forsíðu. Vertu endilega dugleg(ur) að setja inn álit á veitingastöðum sem þú hefur prófað.
Ný könnun
Í síðustu könnun spurðum við á hvern af þessum þremur stöðum viðkomandi vildi helst fá gjafabréf á; Grillmarkaðinn, Fiskfélagið eða Tapas Barinn? Langflestir eða helmingur kaus Grillmarkaðinn en fjórðungur hvorn hinna staðana. Nú spyrjum við hvort þú viljir stundum fá ábendingar, fréttir og ráðleggingar á sviðum neytendamála, til dæmis þar sem mælt er með ákveðnum fyrirtækjum eða varað við öðrum?
Aðrar fréttir og upplýsingar
Veitingastadir.is og NETIÐ styrktu góðgerðarfélög myndarlega í desember eins og við höfum gert undanfarin ár, sjá nánar á forsíðu veitingastadir.is. Á Vistorsguide ferðavefsíðum okkar er hægt að bóka gistingu erlendis á góðu verði sem er alltaf það sama og hjá booking.com, enda erum við með samning við þá. Með þessu móti styrkir þú líka góðferðarfélög.
Með bestu kveðju frá veitingastadir.is
Áframsenda póstinn
© 1998-2012 | NETIÐ markaðs- og rekstrarráðgjöf | Kt. 611299 4789 | sími: 511 2707 | fax: 511 2708 | netid@netid.is
|