Smelltu hér ef þú getur ekki skoðað póstinn. | Smelltu hér til að prenta póstinn. | Áframsenda póstinn.

Kæri viðtakandi  

Efni: Vinningshafar - Umfjöllun - Hótel bókun á netinu

Vinningar og forsíða
Við drógum út 3 vinningshafa. Sá fyrsti sem er kynntur á forsíðu vefjar fær hádegis sushi veislu fyrir 3 á Fiskmarkaðnum. Næsti sem hlýtur gjafabréf fyrir 2 í jöklagöngu með Íslenskum fjallaleiðsögumönnum/ eða gjafabréf á veitingastað er kynntur á forsíðu ferðavefsíðu okkar www.visitorsguide.is. Við viljum nú gjarnan eignast vini á ferðasíðu okkar Visitors Guide á Facebook og tilkynnum einn vinningshafann þar. Smelltu hér til að gerast vinur okkar. Þar munum við smám saman setja inn myndir frá viðskiptavinum og ferðalögum innanlands og erlendis. Sá sem hlýtur 5.000 króna gjafabréf á Tapas barinn er kynntur á þeirri Facebook síðu.

Umfjallanir, fréttir og fleira
Við heimsóttum um daginn Fosshótel Reykholt og veitingastaðinn þeirra sjá umfjöllun um þá ágætu ferð hér undir umfjallanir. Einnig fórum við á Vegamót í miðbæ Reykjavíkur og komumst að því að sá staður stendur svo sannarlega undir gæðum á hagstæðu verði. Á forsíðu er t.d. sagt frá nokkrum góðum stöðum til að heimsækja í hádeginu á góðu verði svo sem Fiskfélagið og einnig eru þar upplýsingar frá Tapas barnum og sagt frá nýjustu veitingastöðunum í bænum.

Hótelbókanir erlendis á góðu verði og vinningsmöguleiki!
Á ferðavefsíðum okkar Visitorsguide er hægt að bóka hótelgistingu um allann heim á góðum kjörum vegna góðs samnings okkar við booking.com. Það er hægt að bóka hvort sem er á www.visitorsguide.is síðunni, eða einhverri af samnefndu erlendu síðunum. Ef þú eða þínir eru á leið erlendis viljum við hvetja þig til að nýta þér bókunarvélina okkar. Öll hótelverð eru heildarverð og eru eins og lægstu verð annars staðar! Undir flokknum "destinations abroad" á vefjunum settum við nýverið inn áhugaverða grein og myndir frá ferð framkæmdastjóra til Líbanon, Sýrlands og Jórdaníu í febrúar. Einnig eru þar fleiri greinar, myndin efst er frá ferðlagi í fyrra til Ísrael sem hægt er að lesa um..

Bókaðu hótel erlendis á síðunum okkar fyrir 17.júní og þú ferð í pott og getur unnið gjafabréf á veitingstað, þarft bara að senda okkur tölvupóst þar sem kemur fram að þú hafir bókað hjá okkur.

Í könnun á forsíðu spyrjum við núna hvern af þessum 3 stöðum þú teljir bestan? Fiskmarkaðinn, Sjávarkjallarann eða Fiskfélagið. Síðast spurðum við um Austur Indía félagið, Caruso eða Tapas barinn, þar hafði Austur-Indía félagið vinninginn með rúm 40% atkvæða. Taktu endilega þátt í nýrri könnun :)

Með bestu kveðju frá veitingastadir.is

Áframsenda póstinn


  © 1998-2011  |   NETIÐ markaðs- og rekstrarráðgjöf   |   Kt. 611299 4789   |   sími: 511 2707   |  
                                                                                                    |   fax: 511 2708   |    
netid@netid.is    
|
                                

Afskrá mig af þessum póstlista