Smelltu hér ef þú getur ekki skoðað póstinn. | Smelltu hér til að prenta póstinn.

Kæri viðtakandi

Efni: Vinningshafar, Jólahlaðborð og Uppskrift

Vinningshafar
Við drógum út 2 vinningshafa. Annar vinningshafinn sem er Jóhanna Fríður Bjarnadóttir hlýtur gjafabréf fyrir kvöldverð fyrir 2 á Hressingarskálanum. Hinn sem hlýtur 10.000 króna gjafabréf á Argentínu er kynntur á forsíðu vefjar. Nú stendur einnig yfir leikur á Facebook síðunni, þar sem hægt er að vinna gjafabréf hér.

Upplýsingar um jólahlaðborð, fréttir, tilboð og könnun á forsíðu
Á forsíðu www.veitingastadir.is er „Tengill á Jólahlaðborð“. Þegar smellt er á hann kemur góður listi yfir jólahlaðborðin hjá fjölmörgum stöðum sem eru með góða skráningu á síðuna og fleirum. Þetta eru bæði staðir í Reykjavík og úti á landi. Þar eru líka verð í hádegi og tilboð ef við á. Þetta auðveldar valið á hvaða jólahlaðborð hentar þér og þínum í ár.

Á forsíðunni eru einnig fréttir og sagt frá tilboðum á veitingastöðum svo sem á Tapas Barnum og Perlunni. Í nýrri könnun spyrjum við: „Ætlar þú á jólahlaðborð í ár?“

Fésbókar síðan
Smelltu endilega hér ef þú hefur ekki þegar gert til að fylgjast með okkur á Facebook. Þar kynnum við sértilboð og fréttir sem við viljum koma fljótt að ásamt því að vera með leiki þar sem heppnir vinir geta unnið sér inn gjafabréf. Nú er í gangi nýr Facebook leikur hjá okkur þar sem gjafabréf á Strikið, Akureyri er í vinning og því ekki seinna vænna en að skrá sig.

Uppskrift – Jólasushi Fiskfélagsins
Laxamaki með disjon sinnepi, gúrku og sesam yozu vinagrette:

Uppskriftin kemur frá Vigdísi Ylfu Hreinsdóttur en hún keppti nýlega í Matreiðslumaður ársins fyrir hönd Fiskfélagsins og varð fyrsta konan sem fer áfram í 5 manna úrslit frá upphafi keppninnar.

Ediklögur fyrir grjón:
200 ml hrísgrjónaedik
150 ml mirrin
5 gr sykur og 2 tsk salt.

Soðið saman og kælt.

Grjón: Skola grjónin vel eða hella vatni af þeim 8 sinnum. Sjóðið sushi grjónin í grjóna potti, sett á bakka og látið kólna, hellið svo edikleginum yfir og hrærið aðeins í.


Létt Grafin Lax:
1 biti af flak af lax
100 gr sykur
100 gr salt
Anis stjarna 1stk
Kardimommur 6 stk
Börkur af 1 sítrónu og
Kanill 1 stk

Blandið sykri, salti og kryddum saman, setjið yfir beinhreinsaðan laxinn og látið liggja á í 2 klst. Skolið vel og skerið í fallega bita.


Maki/ graflax: Notið sushi mottu, setjið 1 nori blað á og svo koma grjónin jafn yfir, smá wasabiduft blandað við vatn smurt á grjónin, næst setjum við fallega bita af laxi sem er grafinn, svo laxahrogn, ferskt dill og sterkt sinnep disjon sett á laxinn og þunnt skorna gúrku. Rúllið upp og passið að kremja ekki rúlluna en hún verður samt að vera þétt. Skerið í fallega bita. Berið fram með engifer, wasabi og sesam yozu vinagrette.

Sesam yosu vinagrette:
1 sharlotte laukur fínt saxaður
Chilli fínt saxað
2 msk sesamolía
½ dl soja
½ dl mirrin
Smá yozu safi (eða sítrónusafi)

Allt hrært saman og smakkað til.
Gaman er að gera nigiri kodda og setja lax á með hrognum og dilltopp. 3 rúllur eru nóg í forrétt fyrir 4 með nokkrum nigiri koddum. Allt hráefni færst í Krónunni og Hagkaupum. Hægt er að nota reyktan ál, túnfisk og krabba í rúlluna.

Með bestu kveðju frá veitingastadir.is

  © 1998-2010  |   NETIÐ markaðs- og rekstrarráðgjöf   |   sími: 511 2707   |   fax: 511 2708   |    netid@netid.is  

Afskrá mig af þessum póstlista