perlan-allt_i-steik-2012-is
/tapashusidveitingastadir_is
  • Finna veitingastað
  • Póstlisti



Þátttakendur á póstlista eiga möguleika á því að vinna gjafabréf á veitingastaði o.fl.

Nafn:
Netfang:
Kyn:
Security:


Skrá  
Tapas Bar

Sem dæmi um rétti má nefna sjávarréttaplatta, lambaplatta, humar, paella (þjóðarréttur Spánverja) og saltfisk. Staðurinn er einn sinnar tegundar á Íslandi og er staðsettur í Grófinni í hjarta miðbæjarins.

...

Meira  
Veitingastadir.is

Hvaða staðir eru skráðir á síðuna?

Nær allir veitingastaðir landsins skráðir á vefsíðuna. Það er talsverð vinna (og þar með kostnaður) fólgin í því að fylgjast með breytingum á veitingamarkaði og því eru allar ábendingar vel þegnar. Sumir staðir eru með stærri skráningar, þ.e. keyptar skráningar með leitarorðum, logo, texta, myndum og fleira. Að jafnaði eru þetta traustir og góðir veitingstaðir sem við bjóðum slíkt og því staðir sem eru í traustu eignarhaldi. Ef þú finnur ekki stað sem þú ert að leita að gæti skýringin verið sú að hann sé nýopnaður, einnig kemur fyrir að við skráum ekki staði sem sífellt eru að skipta um eignarhald og kennitölur.

Síðasta fréttabréf og áframsending

Þú ferð í pott og getur unnið gjafabréf á Fiskfélagið með því að áframsenda.

Vinningshafar

Í byrjun apríl drógum við 3 vinningshafa af póstlista og fyrstu tveir vinningshafarnir eru tilkynntir í fréttabréfi. Þriðji vinningshafinn sem fær gjafabréf í jöklagöngu með íslenskum fjallaleiðsögumönnnum er Ingunn Ólafsdóttir.

Fréttir og tilboð

Tapashúsið - The Tapas House
Tapashúsið við gömlu höfnina í Reykjavík Reykjavíkurhöfn er með nýjan kvöldverðarmatseðil, yfir 80 tapasrétti og mikið af tilboðsseðlum. 3 rétta Humar- og Strandveisla, 3 rétta Saltfiskveisla, 8 rétta Tivolímatseðill, 8 rétta Sjávarréttatapas og 4 Tapasréttir á tilboði. Tapashúsið er eina eldhúsið sem er opið til 23.30 á virkum dögum og til 1.00 um helgar og þann 16. apríl opnar það í hádeginu.  

Grand Hótel Reykjavík - Brunch á sunnudögum í Setrinu
Hótelið er það stærsta í borginni og allt hið glæsilegasta. Það er mikil lukka með brunchinn þar á sunnudögum.  Foreldrar, afar og ömmur getið notið matarins í rólegheitum meðan börnin dunda sér við að skreyta muffins-kökur, lita og lesa, og það er frítt fyrir börn 12 ára og yngri!. Því er upplagt fyrir stórfjölskylduna að hittast og gera sér glaðan og góðan dag. Það eru yfir 20 girnilegir réttir í boði.  Sunnudagsbrunchinn er í boði frá kl. 11:30 - 15:00.

Fiskfélagið - Fish Company
Nýr stórglæsilegur og spennandi hádegisverðarseðill & kvöldverðarseðill á Fiskfélaginu. Fjölbreyttur Sushi-matseðill, fersk sumarsalöt og besta sjávarréttasúpa Íslands í hádeginu en þá er opið frá 11.30 - 14.30. Nýr og stórfenglegur 4 rétta matseðill. Ferðalag um Ísland og Heimsreisa í boði fyrir þá sem vilja fara í sólina.

Hótel Örk gott tilboð og mikið innifalið
Minnum á gott tilboð á hótel Örk Hveragerði svokallaða sælulykla. Gisting í tveggja manna herbergi, 3ja rétta kvöldverður og morgunverður. Einnig aðgangur að sundlaug, jarðgufubaði, heitum pottum og golfvelli o.fl. afþreying. Verð aðeins kr. 24,900 fyrir 2 í eina nótt en kr. 37,900 fyrir tvær nætur. Hótelið hefur mikið verið endurnýjað á síðustu árum og aðstaðan er mjög góð, sem og maturinn eins og við hjá Veitingastadir.is sannreyndum á síðasta ári. 

Nýir veitingastaðir og breytingar
Sushi Samba - nýr, ferskur og framandi Sushi-staður með glænýjar áherslur opnaði í lok nóvember í Þingholtsstræti í miðbænum. Um miðjan nóvember opnaði veitingastaðurinn Confusion á Fosshótel Lind við Rauðarárstíg en hann sérhæfir sig í skemmtilegum fusion smáréttum á hlaðborði. Þá opnaði Forréttabarinn við Geirsgötu, sem við hjá Veit.is prófuðum á dögunum í hádegi og hægt að mæla með. Sjávarkjallarinn hefur nú hætt starfsemi og Rub23, sem getið hefur sér gott orð á Akureyri opnaði í sömu húsakynnum nú í mars. Þá hafa Eldhrímir og Brauðbær báðir hætt og nýir staðir eru komnir í sama húsnæði - sjá nánar um þetta í fréttabréfinu.

Nýlega skráðir staðir á vefsíðuna
Kung Fu - Brekkugötu, Akureyri.
Peng's - Strandgötu, Akureyri.
Sushigryfjan - Smáralind.
Sushi Samba - Þingholtsstræti.

Booking - Visit Visitors Guide 150 SOS banner umhyggja.is